10.8.2010
Hlaupum til góðs
4 konur hlupu í Reykjavíkurmarþoni Íslandsbanka og söfnuðu áheitum fyrir Spes. Þær söfnuðu samtals 72.000 krónum sem er frábært og þökkum við þeim kærlega fyrir að hlaupa fyrir SPES.
Sjá nánar á:
http://hlaupastyrkur.is/godgerdafelog/nanar/4956/spes
Hérna eru nýjar myndir af börnunum í Lomé og Kpalimé
http://sites.google.com/site/spesenglish/orphanate-in-lome
http://sites.google.com/site/spesenglish/orphanage-at-kpalime
26.4.2010
Heimsókn til Tógó í janúar 2010
Bera Þórisdóttir skrifar:
Við Njörður fórum í okkar árlegu heimsókn til Togó í janúar 2010. Að vanda var ákaflega vel tekið á móti okkur. Eldri börnin þekkja okkur orðið vel og heilsa okkur sem góðum ættingjum, eins konar afa og ömmu, Papí og Mamí. Yngstu börnin herma eftir og öll þyrstir þau í vinahót og faðmlag. Starfsfólkið hefur flest unnið þarna lengi og eru orðnir góðir vinir. Konurnar heilsa flestar með 4 kossum á Tógóvísu en karlmennirnir heilsa virðulega með handabandi að þeirra hætti. Rétta fram hægri hönd um leið og þeir taka undir handlegginn með þeirri vinstri.
Heimilið í Lomé er nú fullbyggt, velútbúið og frágengið. Þó vantar enn svolítið meira gras og annan gróður. Nú þarf að sinna viðhaldi vel því afar rakt loftslagið fer illa með byggingar ef ekki er að gætt og 100 barna heimili gerir líka miklar kröfur um viðhald og hreinlæti.
Börnin voru öll við góða heilsu þegar við komum en þessar 3 vikur sem við dvöldum þarna voru stundum 2-3 börn sem ekki fóru í skóla vegna smálasleika eins og gengur. En daginn sem við fórum veiktist Komlavi illa og var fluttur á sjúkrahús. Síðar kom í ljós að hann er flogaveikur og mun þurfa lyfjagjöf alla ævi. Nú er gott að vita af fjárstyrk sem Skjeljungur veitti SPES til heilsugæslu.
19.4.2010
Styrkir
Ísland styrkir skólabyggingar í Tógó.
Á árunum 2007 og 2009 misstu þúsundir fólks í norður Tógó heimili sín í miklum flóðum sem urðu í kjölfar gríðarlegra rigninga. Þá eyðilögðust, auk mikilvægra samgönguleiða, einnig yfir 900 skólastofur svo skólahald varð ákaflega erfitt og lagðist af í sumum héruðum.
Utanríkisráðherra Íslands, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, ákvað árið 2008 að styrkja uppbyggingu skóla á þessu svæði og veitti 80.000 EUR sem varið er til að byggja 2 miðskóla, í bænum Kri Kri í Tchambahéraði og bænum Kabré í Kpenjal héraði. Bygging þeirra stendur yfir og verða þeir teknir í notkun í haust (2010) .
SPES hefur verið falið að hafa eftirlit og umsjón með þessum framkvæmdum og sinnir Claude Gbedey, kjörræðismaður Íslands í Tógó og varaformaður SPES alþjóðlegrar barnahjálpar þessu verkefni.
Skeljungur ehf styrkir SPES
Í lok síðasta árs ákvað Skeljungur ehf að styrkja SPES alls um 1,5 miljónir ISK Þessum styrk verður varið til heilsugæslu í Tógó í tengslum við heimili SPES í Lomé og Kpalimé. Hefur einum úr hópi styrktarforeldra, Eyjólfi Guðmundssyni, heilsugæslulækni í Reykjavík og stjórnarmanni í SPES International verið falið að vera heilbrigðisstarfsfólki SPES til ráðgjafar.
Þessi styrkur er afar mikilvægur og við erum þakklát fyrir þann hlýhug og skilning sem Skeljungur sýnir starfi okkar fyrir börnin í Tógó.
5.3.2010
Fundargerð Aðalfundar Íslandsdeildar Spes
Fundargerð
Aðalfundar Íslandsdeildar SPES 27. 2. 2010
Fundarstjóri var Jón Sigurðsson, stjórnarmaður og Eva María Gunnarsdóttir, vara-formaður fundarritari.
Mættir voru 25 félagsmenn.
Fundarstjóri bauð fundarmenn velkomna og gaf Ólöfu Nordal, formanni Íslandsdeildar SPES orðið.
1.Skýrsla stjórnar:
Í máli formanns kom fram að starfið gekk vel á liðnu ári og það tókst að halda sjó þrátt fyrir óstöðugleika í þjóðfélaginu. Hins vegar hefur stjórnin áhyggjur af gengi evrunnar og áhrif þess á aukinn kostnað styrktarforeldra. Ákveðið var á síðasta stjórnarfundi að fastsetja í hálft ár þá fjárhæð sem styrktarforeldrar greiða eða kr. 12.500 á mánuði með einu barni. Sú fjárhæð verður endurskoðuð eftir sex mánuði. Styrktarforeldrar fá sent uppgjör.
Ákveðið var fresta sérstöku kynningarátaki um óákveðinn tíma vegna efnahagsvandans. Nauðsynlegt er hins vegar að finna fleiri styrktarforeldra og benda á að fleiri en einn geta verið saman um barn.
2. Skýrsla gjaldkera.
Bera Þórisdóttir, gjaldkeri, fór yfir og skýrði ársreikning Íslandsdeidar SPES fyrir árið 2009, en þar kom fram að fjárhagur deildarinnar er góður. Öryggistilfinningin gagnvart innlendum bönkum er lítil og því hefur innistæðum verið dreift á alla bankana. Stærsta innistæðan er í MP banka, þar sem hæstu vextirnir fást. Nær einungis eru sendir út þeir peningar sem styrktarforeldrar greiða þar sem vextir eru hærri hér á bankareikningum en í París, í þeirri von að gengið lagist. Það hefur verið stefna frá upphafi að eiga varasjóð, ef eitthvað fer úrskeiðis og því þykir skynsamlegt að geyma hluta hans hér um sinn.
Á liðnu ári voru 45.000 evrur sendar héðan. Sjá meira.....
8.2.2010
Aðalfundur SPES laugardaginn 27.febrúar kl.10:30 í safnaðarheimili Neskirkju.
Dagskrá:
1. Skýrsla formanns
2. Skýrsla gjaldkera
3. Reikningar ársins 2009 bornir fram til samþykktar
4. Málefni styrktarforeldra
5. Bera og Njörður segja frá ferð til Tógó
6. Önnur mál
Stjórnin vonast til að sjá sem flesta, einkum styrktarforeldra.
SPES-fréttir febrúar 2010
Skeljungur styrkir SPES
Skeljungur styrkir SPES á þessu ári og nemur styrkurinn 1,5 milljón.
Honum verður varið til að greiða heilbrigðisþjónustu SPES í Tógó.
Á síðasta ári nam sá kostnaður 8.789 evrum, og er sú fjárhæð svipuð og styrkurinn í ár. SPES kann Skeljungi miklar þakkir.
Bera og Njörður voru í Tógó í tæpar þrjár vikur í janúar og segja stuttlega frá dvöl sinni (þau komu heim þreytt og hálflasin af aukaverkunum malaríulyfja):
20 börn í Kpalimé
14. febrúar er liðið ár frá því að heimilið í Kpalimé var vígt. Nú eru þar 20 börn, öll við góða heilsu, þótt malaría hafi gert vart við sig og borið hafi á lús (en við henni var brugðist skjótt). Reist hafa verið tvö svefnhýsi, eldhús og matsalir og skrifstofuhús starfsfólksins er vel á veg komið. Þá er eftir að reisa önnur tvö svefnhýsi og tómstundahús. Lóð SPES í Kpalimé er svo stór (heill hektari) að um helmingur hennar er nú nýttur til ræktunar maís og ávaxta (ananas, mangó, bananar, papaya, enjam). Maísuppskera hefur verið svo mikil að hefur meira en dugað fyrir heimilið og töluvert flutt til Lomé. Pascal Chini, umsjónarmaður með starfinu í Kpalimé hefur unnið ákaflega gott starf og forstöðukonan Berthe hefur reynst vel. Einnig er ágætt samstarf við bæjarstjórann Victor Samtou og bæjarstjórnina.
14.1.2010
Anna Margrét Björnsson skrifar í Fréttablaðið 12.1.2009:
Fréttir af skotárás á rútu landsliðs Tógóbúa á föstudag sem varð þremur að bana voru hörmulegar. Ég hafði nú ekki hugsað mér að fylgjast með Afríkubikarnum þar sem fótboltaáhugi minn er minni en enginn en árásin vakti sérstaka athygli mína vegna þeirrar ástæðu að ég sótti Tógó heim fyrir tveimur árum. Fótbolti er Tógómönnum sérstaklega hugleikinn og ég minnist þess með hlýju í hjarta hversu alsæl og kát berfætt börn spörkuðu í bolta á heitri rauðleitri jörð.
Þessi börn voru á heimili sem Íslendingar hafa byggt handa þeim í Lomé, í SPES-þorpinu sem prófessor Njörður P. Njarðvík setti á fót í þessu sárfátæka landi. Þörfin fyrir slík heimili í Tógó, eins og í fjölmörgum Afríkulöndum, er mikil þar sem veikir foreldrar deyja iðulega frá ungum börnum sínum eða sjá sér ekki fært að fæða þau. Eyðni, malaría og fjöldi annarra sjúkdóma herja á Tógó líkt og önnur Afríkulönd. Oft koma börnin sárlasin, niðurbrotin og vannærð á heimilið, sem bjargar lífi þeirra og sendir þau í skóla.
Ég ferðaðist til Tógó fyrir hrunið, og á því ári var eftirtektarvert að margir íslenskir efnamenn sóttu Afríku heim. Heimsálfan snerti væntanlega við mörgum þeirra sem gáfu fjármuni til góðgerðarsamtaka og meðal annars til þess að styðja við uppbyggingu SPES í Tógó. Í hinni hatursfullu umræðu um mennina sem settu Ísland á hausinn má alveg muna eftir því að eitthvað gott hlaust af.
Hvarvetna í Afríku eru litlir strákar að sparka í bolta. Stundum er hann gerður úr plastpoka og stundum úr krumpuðum pappír. En svo lengi sem það er hægt að sparka í hann þá er hægt að spila. Umræðan um Afríkubikarinn í Angólu snýst núna aðallega um það að heimsbikarkeppnin í fótbolta í Suður-Afríku þetta árið verði stórhættuleg og lituð af skæruliðaárásum. Hræðsla ríkir um framvindu Afríkubikarsins í Angólu og felmtri slegið Tógó-liðið hefur verið sent heim og fær ekki að leika. Vonandi mun þessi árás ekki eyðileggja framvindu fótboltaársins mikla í heimsálfunni og vonandi verða þessar spennandi keppnir til þess að færa hjarta Afríku aðeins nær okkur.
2.12.2009
Jólagjafir
Kæru styrktarforeldrar:
Mig langar að biðja ykkur að senda börnum ykkar eitthvert lítilræði fyrir jólin, þótt ekki væri nema kort.
Þau gleðjast ákaflega ef þau fá póst.
Við viljum líka helst að börnin eigi myndir af styrktarforeldrum sínum og fjölskyldum þeirra.
Þau þurfa að vita að þau eigi einhverja að. Það er þeim ákaflega mikilsvert.
Bréf skal stíla á forstöðukonurnar, því að póstur er ekki borinn út í Tógó, allt fer í pósthólf,og ekki fást afhent bréf nema til þess sem bréfið er stílað á.
Síðan þarf að merkja bréfið einnig barninu, eða hafa tvö umslög.
Með góðum kveðjum og þakklæti fyrir allan stuðninginn, Njörður
Mme Immaculée Dede Ameganvi
Directrice de la maison SPES
BP 20 324
LOME
TOGO
Mme Berthe Amedzro ADJOAVI
Directrice de la maison SPES
260 BP 459
KPALIME
TOGO
30.11.2009
Fréttir frá Tógó
Kæru SPES-vinir:
Hér eru nokkrar fréttir frá Tógó.
Styrktarforeldra vantar
SPES vantar fleiri styrktarforeldra.
Eitt barn sem áður átti íslenskra styrktarforeldra, fær nú greiðslur úr almennum sjóði.
Okkur vantar því styrktarforeldra fyrir það. Og einnig til þess að geta fjölgað börnum í Kpalimé. Okkur er ljóst að þetta er orðið dýrt vegna lágs gengis krónunar, um 14.000.
Við stingum því upp á því að fleiri en einn sé um barn, t.d. tvenn vinahjón, systkin eða vinir,en ekki fleiri en fjórir einstaklingar um hvert barn.
Við biðjum því um aðstoð að finna nýja styrktarforeldra.
Hafið samband við Beru, gjaldkera Íslandsdeildar SPES bera@vortex.is sími 561 2366 & 692 1286.
Börnin kjósa formenn og umsjónarmenn svefnhýsa
Sú nýbreytni hefur verið tekin upp á heimil SPES í Lomé, að öll börn á skólaaldri kjósa úr sínum hópi formenn og varaformenn til tveggja ára, annars vegar fyrir drengi og hins vegar fyrir stúlkur. Bregðist þeir hlutverki sínu má kalla saman nýjan kosningafund.
Þetta er gert til að auka ábyrgð barnanna og gefa þeim jafnframt kost á að ráða ráðum sínum sjálf
að nokkru leyti.
Úr hópi stúlkna voru kosnar Viviane Wilson (11 ára) formaður og Lucie Hounsiga (11 ára) varaformaður.
Úr hópi drengja voru kosnir Komlavi Nana (11 ára) formaður og Richard Mensah (12 ára) varaformaður.
10.8.2009
Áríðandi
Kæru SPES-vinir:
Nú vantar styrktarforeldra fyrir eitt barn sem er komið á heimilið í Kpalimé.
Ég geri mér grein fyrir því að það er orðið miklu dýrara að styrkja barn en áður, vegna lágs gengis krónunnar.
77 evrur eru nú um 13.500 krónur.
Þess vegna er nú erfiðara að fá styrkarforeldra.
En börnin þurfa að geta lifað.
Og vonandi eflist krónan.
Þess vegna spyr ég ykkur hvort þið þekkið einhverja sem gætu hugsað sér að taka að sér barn.
Vel geta tvenn hjón verið saman um eitt barn, systkin, fjölskylda, - nú eða bara vinir.
Við viljum hins vegar helst ekki að fleiri en fjórir séu um hvert barn.
Stúlkan Nutifafa Alagbo er fædd 3.11.2007.
Ég bið ykkur að athuga hvort þið getið hugsanlega hjálpað til að finna styrktarforeldra fyrir hana
Vinsamlega hafið samband við Njörð P.Njarðvík sími 899-9757.
12.6.2009
Aðalfundur SPES International: Nýtt fulltrúaráð og stjórn
Aðalfundur SPES International var haldinn í París 24. maí 2009.
Kjörið var nýtt 15 manna fulltrúaráð til þriggja ára og skipti með sér verkum sem hér segir:
Bera Þórisdóttir (Ísland) ritari
Brian Roberts (Bretland)
Claude Gbedey (Tógó) varaformaður
Claude Voileau (Frakkland) formaður
Eva María Gunnarsdóttir (Ísland)
Eyjólfur Guðmundsson (Ísland)
Gabriele Pfleger (Austurríki)
Lena Magnúsdóttir (Ísland)
Martine de Haan (Belgía)
Michelle Voileau (Frakkalnd) annast samskipti við styrktarforeldra
Philippe Etienne (Frakkland) aðstoðargjaldkeri
Philippe Platel (Frakkland) aðstoðarritari og annast heimasíðu
Pierette Grisard (Frakkland) gjaldkeri
Randall Czerenda (Bandaríkin)
Robert Knudsen (Belgía)
Njörður P. Njarðvík gaf ekki kost á sér til endurkjörs.
Hann var kosinn heiðursformaður.
105 börn á tveimur heimilum
Nýtt SPES-heimili var vígt 14. febrúar í Kpalimé, 60.000 manna bæ 120 km. Norðvestur af Lomé
Þar eru nú 11 börn, og 6 til viðbótar koma fljótlega.
Forstöðukonan þar heitir Berthe Amedzro og heimilisfang 260 BP 459 Kpalimé, Togo.
94 börn eru á SPES-heimilinu í Lomé.
SPES styrkir barnaskólann í Kélégougan
SPES hefur styrkt almenna barnaskólann í Kélégougan þar sem börnin okkar læra.
Nú síðast hefur SPES byggt tvö hús með 9 nýjum kennslustofum.
Fyrir bragðið hefur skólinn fengið fjóra nýja kennara og þar með hefur fækkað umtalsvert í yngstu bekkjunum.
Alþjóða heimasíðan uppfærð.
Alþjóðleg heimasíða SPES hefur verið uppfærð og henni breytt um leið.
Þar er margvíslegt myndaefni, m.a. annars af nýju fulltrúaráði, heimilunum í Lomé og Kpalimé og öllum börnunum.
Slóðin er http://spesworld.free.fr
1 2 3 4 5
til baka