SPES
Sjálfstætt fólk í Tógó
Skoppa og Skrýtla í Tógó myndband
 
Stofnun Spes International í febrúar 2000

SPES International (latneskt orð sem merkir VON) var stofnað í Frakklandi í febrúar 2000. Ári síðar í apríl 2001 var tekið á leigu einbýlishús í Lomé, höfuðborg Togo í Vestur-Afríku og hafin starfsemi með 8 munaðarlausum börnum, sem fjölgaði í 20. Fyrrverandi forseti Togo, Gnassingbé Eyadema, lét SPES í té byggingarland um hálfan hektara í hverfinu Kélégougan við götu sem heitir Rue de Notre Dame de la Misericorde. Togoskur arkitekt Henri Apeti teiknaði þvínæst þorp fyrir 120-130 börn.

Stjórn SPES International í Frakklandi er þannig skipuð:

Bera Þórisdóttir (Ísland) ritari
Brian Roberts (Bretland)
Claude Gbedey (Tógó) varaformaður
Claude Voileau (Frakkland) formaður
Eva María Gunnarsdóttir (Ísland)
Eyjólfur Guðmundsson (Ísland)
Gabriele Pfleger (Austurríki)
Lena Magnúsdóttir (Ísland)
Martine de Haan (Belgía)
Michelle Voileau (Frakkalnd) annast samskipti við styrktarforeldra
Philippe Etienne (Frakkland) aðstoðargjaldkeri
Philippe Platel (Frakkland) aðstoðarritari og annast heimasíðu
Pierette Grisard (Frakkland) gjaldkeri
Randall Czerenda (Bandaríkin)
Robert Knudsen (Belgía)

SPES TOGO
Myndað var dótturfélag SPES-Togo sem sér um allan rekstur heimilisins og hefur eftirlit með byggingarframkvæmdum.
Stjórn SPES í TOGO er þannig skipuð:
Louise Kissem Tshangai Walla, formaður, prófessor í læknisfræði
Victor de Medeiros, heiðursformaður, stofnandi ásamt Nirði
Alphonsine Aplogan, varaformaður
Francoise Croze, aðstoðarvaraformaður
Claude Gbedey, gjaldkeri
Claude Messan, ritari
Colette Labety lögfræðilegur ráðunautur
Forstöðukona heimilis SPES heitir Immaculé Ameganvi
Heimilisfang er SPES, BP 20324, Lomé, Togo
Á heimasíðu SPES http://spesworld.free.fr má sjá myndir af öllum stjórnarmönnum SPES og SPES TOGO og  frekari upplýsingar.









til baka