Stefna og reglur
SPES er hugsjónafélag sem hefur að kjörorði Sá sem bjargar einu barni bjargar mannkyninu. Af því leiðir að allt stjórnarstarf er unnið í sjálfboðavinnu. Skrifstofu- og umsýslukostnaður er enginn. Beinn kostnaður er svo lítill að hann er innan við eitt prósent.
Þegar stjórnarmenn ferðast til Togo gera þeir það fyrir eigin reikning. Allt fé sem berst rennur því beint til barnanna og til byggingarfram-kvæmda.
Stefna SPES er að koma upp og reka heimili fyrir munaðarlaus börn í þróunarlöndum. Við leggjum áherslu á að það sé heimili en ekki stofnun. Börnin eiga að haga lífi sínu eins eðlilega og kostur er. Því er greitt fyrir leikskólapláss fyrir yngstu börnin og hin eldri ganga í almennan skóla í hverfinu.
Öll börnin eru á framfæri SPES til 18 ára aldurs amk. og vonast er til að þau geti fengið þá menntun sem hugur þeirra og geta stendur til.
Það kostar 77 evrur á mánuði að styrkja eitt barn.
Lög SPES á Íslandi
1. SPES –Ísland er deild í SPES INTERNATIONAL (Soutien Pour l’Enfance En Souffrounce). Heimili og varnarþing er í Reykjavík. Heimilisfang: Flyðrugrandi 12, 107 Reykjavík. Heimilisfangi má breyta eftir þörfum. Kennitala er 471100-2930 og bankareikningur í SPRON 1151-26-2200
2. Tilgangur félagsins er að afla fjár fyrir SPES INTERNATIONAL sem rekur heimili fyrir munaðarlaus og/eða yfirgefin börn. Ennfremur að finna nýja styrktarforeldra. Enginn félagsmaður þiggur laun fyrir störf í þágu þess.
3. Félagsmenn eru þeir sem greiða árgjald félagsins eða eru styrktarforeldrar. Árgjald skal ákveðið á aðalfundi. Ævifélagar eru þeir sem gefa félaginu kr. 100.000 eða meira. Árgjald skal greiða á fyrstu þremur mánuðum hvers árs. Greiði félagsmaður ekki árgjald á tilsettum tíma er litið svo á að hann hafi sagt sig úr félaginu. Greiðslu árgjalds fylgir sjálfkrafa skráning í félagið. Félagsmenn eru jafnframt félagar í SPES INTERNATIONAL.
4. Aðalfundur skal haldinn árlega eins fljótt og unnt er eftir aðalfund SPES INTERNATIONAL í maí. Á aðalfundi skal flutt skýrsla stjórnar, reikningar liðins árs lagðir fram til samþykktar og stjórn kosin til þriggja ára í senn.
Tveir endurskoðendur kosnir til sama tíma.
Á aðalfundi má breyta lögum félagsins skv. skriflegum tillögum sem sendar eru með fundarboði. Aðalfund skal boða með tölvupósti og/eða skriflega með minnst tveggja vikna fyrirvara.
5. Stjórn skal skipuð fimm félagsmönnum: Formaður, varaformaður, ritari, gjaldkeri og meðstjórnandi.
Þessi lög eru samþykkt á stofnfundi 6.nóvember 2005.
til baka

| Áætluð mánaðarútgjöld fyrir 1 barn | ||
| Launakostnaður | ||
| Forstöðukona og aðstoðarmaður | 3,63 | |
| Fóstrur+þvottakonur+”amma” | 21,22 | |
| Garðyrkjumenn-verðir | 3,33 | |
| Föst útgjöld | ||
| Vatn | 1,41 | |
| Rafmagn | 2,27 | |
| Pósthólf nr 20324 | 0,03 | |
| Sími | 0,09 | |
| Ritföng | 0,18 | |
| Sorp | 0,02 | |
| Trygging | 0,31 | |
| Börnin | ||
| Matur | 15,24 | |
| Lyf og heilsa (eftirlit, sálfræðingur) | 6,35 | |
| Umhirða húsnæðis | 1,18 | |
| Umhirða barnanna (+rakari) | 1,36 | |
| Skóli +stuðningur v. Heimanám | 4,72 | |
| Bíllinn | 0,7 | |
| Ýmis útbúnaður | 0,73 | |
| Ýmiss konar viðhald | 4,23 | |
| Menntunarsjóður | 10 | |
| Samtals Evrur | 77,0 | á mánuði |